Jesús sagði að öll boðorðin væru uppfyllt í þessum tveimur: „Að elska Drottinn Guð af öllum huga, hjarta, sálu og mætti og að elska náungann eins og sjálfan sig.“

Páll postuli skrifaði í Rómverjabréfi Biblíunnar 13:8-11 „Skuldið ekki neinum neitt nema það eitt að elska hver annan. því að sá sem elskar náunga sinn, hefir uppfyllt lögmálið. Því að þetta: Þú skalt ekki drýgja hór; þú skalt ekki morð fremja; þú skalt ekki stela; þú skalt ekki girnast, og hvert annað boðorð er í þessari grein innifalið, í þessu; Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Kærleikurinn gerir ekki náunganum mein. Þess vegna er kærleikurinn fylling lögmálsins.“

Öll boðorðin 10 hafa það meginmarkmið að maðurinn lifi í fullkomnum kærleika.

  1. Ég er Drottinn Guð þinn og þú skalt ekki hafa aðra Guði en mig.
  2. Þú skalt enginn líkneski gjöra þér, engar myndir af því sem er á himni eða jörðu, þú skalt ekki tilbiðja þær og ekki dýrka þær.
  3. Þú skalt ekki nefna nafn Drottins Guðs við hégóma, því að Drottinn mun ekki láta þeim óhengt, sem leggur nafn hans við hégóma.
  4. Þú skalt halda hvíldardaginn heilagan.
  5. Þú skalt heiðra föður þinn og móður.
  6. Þú skalt ekki morð fremja.
  7. Þú skalt ekki drýgja hór.
  8. Þú skalt ekki stela.
  9. Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.
  10. Þú skalt ekki girnast hús, konu eða nokkuð annað sem náungi þinn á.